Mögnuð matarupplifun

Moss í Kerlingarfjöllum

Aggi Sverrisson, yfirmatreiðslumaður veitingastaðarins Moss, töfrar fram magnaða Michelin-máltíð í Kerlingarfjöllum.

24.-26. apríl

Frumleiki og sköpunarkraftur

Helgina 24.-26. apríl verður Michelin-kokkurinn Aggi Sverris, yfirkokkur veitingastaðarins Moss, með matarviðburð í Kerlingarfjöllum. Aggi notar árstíðarbundin hráefni af bestu gæðum til að skapa nýstárlega rétti undir áhrifum íslenskrar og asískrar matargerðar. Gerðu vel við bragðlaukana og njóttu helgarinnar á hálendinu.

Bóka

Skapandi íslensk matargerð

Aggi Sverrisson er yfirmatreiðslumaður veitingastaðarins Moss á The Retreat hótelinu við Bláa Lónið. Aggi er margverðlaunaður fyrir matreiðslu sína og varð árið 2010 fyrsti Íslendingurinn til að hljóta Michelin-stjörnu fyrir veitingastað sinn Texture í Lundúnum og hefur Moss haldið Michelin-stjörnu sinni undir stjórn Agga frá árinu 2023. Á Moss eru aðeins notuð árstíðarbundin hráefni af bestu gæðum í skapandi íslenska matargerð undir asískum áhrifum og fá gestir að njóta afbragðsrétta í nýstárlegum útfærslum.

Innifalið

  • Gisting í eina nótt

  • Fimm rétta Moss-máltíð

  • Morgunverður

  • Sögustund á kvöldin

  • Stjörnuskoðun (ef veður leyfir)

  • Aðgangur að Hálendisböðunum

  • Fyrir gesti sem bæta við aukanótt á föstudegi fylgir einnig vínsmakk með vínsérfræðingi Retreat Hotel

Verð og herbergi

Við bjóðum upp á sérstök tilboðsverð.

  • Standard twin herbergi – 98.250 kr. (einn gestur í herbergi) eða 145.800 kr. (tveir gestir í herbergi)

  • Double deluxe herbergi – 130.100 kr. (einn gestur í herbergi) eða 181.550 kr. (tveir gestir í herbergi)

  • Deluxe fjölskylduherbergi – 188.050 kr.

  • Einkaskáli – 227.700 kr.

  • Svíta – 256.300 kr. (tveir gestir í herbergi)

Hægt er að bæta við vínpörun með Moss matarupplifuninni fyrir 16.900 kr. á mann.

Ferðin til fjalla 

Þátttakendur geta valið um að keyra á svæðið á eigin vegum eða að bóka akstur fyrir aukagjald.  

Á eigin vegum: Yfir veturinn er aðeins fært til okkar á sérútbúnum fjallajeppum, enda geta veður og færð verið óútreiknanleg. Því er mikilvægt að gestir hafi aðgang að slíkum farartækjum, séu við öllu búnir og treysti sér til ferðarinnar. Hér eru upplýsingar um ferðalagið. 

Akstur: Lagt er af stað á föstudeginum frá Skógarhlíð 10, Reykjavík kl 09:00, með viðkomu í Skjóli kl 10:45. Hægt er að leggja bílum í Skjóli yfir helgina, fyrir þau sem kjósa að fá aðeins akstur úr Skjóli í Kerlingarfjöll. Við biðjum þátttakendur að mæta stundvíslega og vera vel útbúnir á leiðinni, því ævintýrin gera ekki boð á undan sér. 

Algengar spurningar

Tryggðu þér pláss

Smelltu hér til að bóka.

Bóka