Gönguleið

Snækollur

Hæsti tindur Kerlingarfjalla þar sem mikilfengleg útsýni og stórbrotin náttúra bíða þín.

Gönguferð með leiðsögn

Mikilfenglegt útsýni

Lengd

5 km

Tími

5 klst.

Hækkun

600 m

Aldurstakmark

10 ára

Erfiðleikastig

Snækollur er hæsti tindur Kerlingarfjalla. Margir telja að ofan af toppnum sé hægt að sjá til bæði suður- og norðurstrandar Íslands í góðu skyggni. Við getum allavega staðfest að útsýnið er algjörlega stórfenglegt – hvort sem sést til sjávar eða ekki.

Komdu í göngu með reyndum leiðsögumanni sem er fullur af fróðleik. Mesta hækkunin fer fram á bröttum en tiltölulega stuttum kafla. Við tekur stórbrotinn fjallastígur sem leiðir upp á fjallstindinn. Það er hvergi betra að stoppa en á toppnum til að hvíla þreytta fætur, fá sér hressingu og njóta útsýnisins. Á bakaleiðinni er gengið yfir jökulbreiðu.

Þátttakendur hitta leiðsögumann á hótelinu kl. 10:00. Byrjað er á að útdeila búnaði, stilla brodda o.s.frv. Þátttakendur nota svo eigin farartæki til að komast á upphafsstað göngunnar.

Skráning

Nánari upplýsingar

Verð: 29.900 kr. á mann (jöklabúnaður er innifalinn í verði)

Lágmarks-/hámarksfjöldi: 5/7

Erfiðleikastig: Getur verið krefjandi, þátttakendur ættu að vera í ágætri þjálfun.

Dagsetningar: 29. júní, 5. júlí og 9. ágúst

Tryggðu þér pláss

Smelltu hér til að bóka.

Activity Host - Kerlingarfjöll Highland Base
Hiking in Kerlingarfjöll - Highland Base