
Náttúruundur
Ganga dagsins í Hveradali
Dagleg ganga með leiðsögn um magnað umhverfi Hveradala.
Óviðjafnanleg náttúruperla
Upplifðu undur hálendisins
Lengd
3.6 km
Tími
3 klst.
Hækkun
200 m
Aldurstakmark
12 ára
Erfiðleikastig
Dagleg ganga um Hveradali er þriggja klst. ganga með leiðsögn um hina mögnuðu Hveradali.
Gengið er um kraftmikið og stórbrotið háhitasvæði sem er einstaklega ríkt að síbreytilegum jarðhitamyndunum. Þar má finna raðir sjóðheitra hvera, leirhvera og jarðhitastróka þar sem dáleiðandi andstæður elds og íss mæta litbrigðum og víðáttu hálendisins.

Nánari upplýsingar
Tímasetning: Í boði frá 20. júní til 30. september kl 8:30.
Akstur: Hópurinn hittist ásamt leiðsögumanni í móttöku hótelsins og þátttakendur aka sjálfir að upphafsstað göngunnar.
Upphafs- og endapunktur: Bílastæðið við Hveradali.
Markverðir staðir: Háhitasvæði Hveradala; gufuhverir, leirhverir og jarðhitastrókar.
Verð
24.900 kr. fyrir fullorðna


Leiðarlýsing
Dagskráin hefst á hótelinu þar sem leiðsögumaður fer yfir gönguleiðina, aðstæður, veður og viðeigandi klæðnað fyrir göngu dagsins. Að því loknu aka þátttakendur að bílastæðinu við Hveradali.
Eftir að hafa skoðað okkur um svæðið göngum við aftur að bílastæðinu og endum ferð okkar á hótelinu.
