Njóttu dvalarinnar
Allar helstu upplýsingar
Við vonum að þú hafir það gott hjá okkur í Kerlingarfjöllum. Hér eru ýmsar hagnýtar upplýsingar sem tryggja dvölin verði ævintýralega ánægjuleg og eftirminnileg.

Tjaldsvæði og nípur
Velkomin til fjalla, þar sem ævintýrin bíða þín!
Njóttu dvalarinnar
Við vonum að þú hafir það gott hjá okkur í Kerlingarfjöllum. Hér eru ýmsar hagnýtar upplýsingar sem tryggja dvölin verði ævintýralega ánægjuleg og eftirminnileg.

Allt sem þú þarft
Í þjónustuhúsinu fá gestir á tjaldsvæði og í skálum aðgang að öllu sem til þarf í ferðalagi á fjöllum. Salerni, sturtur, eldunaraðstaða og útigrill gera dvölina í Kerlingarfjöllum þægilega og aðgengilega.




Bókaðu með Parka
Vinsamlegast setjið ekki upp tjald eða ferðavagn án leyfis frá starfsfólki. Smelltu hér til að bóka pláss á tjaldsvæðinu.
Verðlisti
Fullorðnir (17 ára og eldri): 3.000 kr.
Unglingar (12-16 ára): 2.000 kr.
Börn (0-11 ára): Ókeypis
Rafmagn: 2.000 kr. (Rafmagn er aðgengilegt á svæðum A og F, í sex plássum á hvoru svæði )
Gistináttaskattur: 400 kr. (fyrir hvert tjald hverja nótt)
Tjaldsvæðið er opið frá 15. júní til 30. september. Opnunartími er með fyrirvara um færð og veður og gæti breyst.





Umvafinn hlýju
Gestir á tjaldsvæði og í skálum fá afslátt af aðgangi að Hálendisböðunum. Þar eru meðal annars heitar setlaugar, glæsileg sauna með útsýni til fjalla og kaldur pottur. Eins er bar þar sem hægt er að panta hressandi drykki. Innangengt er fyrir gesti á milli hótelsins og baðanna.
Almennur opnunartími baðanna er frá 11:00 til 23:00.
Verð fyrir á tjaldgesti svæði og í skálum:
Fullorðnir: 2.900 kr.
Unglingar (12-16 ára): 2.300 kr.
Börn (0-11 ára): Ókeypis
Í búningsklefunum eru snagar til að hengja upp föt og litlir, læstir skápar fyrir verðmæti.
Nánar





Allt árið um kring
Kerlingarfjöll eru fullkominn heilsársáfangastaður fyrir allt ævintýrafólk. Hér býðst spennandi útivist við hæfi allra ferðalanga, frá gönguferðum og fjallahjólreiðum til skíðaleiðangra og vélsleðaferða.
Nánar


