Náttúruundur 

Ganga dagsins í Hverabotn 

Dagleg ganga með leiðsögn um magnað umhverfi Hveradala inn að náttúruperlunni Hverabotni. 

Óviðjafnanleg náttúruperla

Ganga dagsins – Hverabotn

Lengd

9 km

Tími

4 klst.

Hækkun

750 m

Aldurstakmark

12 ára

Erfiðleikastig

Gengið er upp í átt að Mænisjökli upp á hæsta punkt Hverabotns, þar sem stórkostlegt útsýni yfir dalinn blasir við. Hverabotn er hluti af háhitasvæði Kerlingarfjalla og er einstaklega ríkur að síbreytilegum jarðhitamyndunum. Þrátt fyrir að dalurinn sé lítill eru þar margir kraftmiklir gufuhverir, leirhverir, laugar og gufuaugu, og mistur sem ljáir umhverfinu dulrænan blæ.  

Bóka núna

Nánari upplýsingar

Tímasetning: Alla daga frá 20. júní til 30. september kl 9:00

Akstur: Hópurinn hittist ásamt leiðsögumanni í móttöku hótelsins og þáttakendur aka sjálfir að upphafsstað göngunnar. 

Uppphafs- og endapunktur: Bílastæðið við Hveradali 

Markverðir staðir: Hverabotn, Mænir, Hveradalshnúkur, Fannborg, Snækollur og Loðmundur 

 

Verð 

24.900 kr. fyrir fullorðna 

19.900 kr. fyrir börn 12-16 ára 

Leiðarlýsing 

Dagskráin hefst á hótelinu þar sem leiðsögumaður fer yfir gönguleiðina, aðstæður, veður og viðeigandi klæðnað fyrir göngu dagsins. Að því loknu aka þátttakendur að bílastæðinu við Hveradali. Við höldum okkur fjarri fjölfarnari stígum svæðisins og ferðumst um fáfarna slóða að aðdáunarverðasta náttúruundri Hverabotns. Þar sjáum við heitasta svæði Íslands, í orðsins fyllstu merkingu, en hver þessi hefur mælst 145-150°C heitur, sem er einhver mesti hiti sem mælst hefur á háhitasvæði á Íslandi.

Eftir að hafa skoðað okkur um svæðið göngum við aftur til Hveradala og endum ferð okkar á hótelinu.

Tryggðu þér pláss

Smelltu hér til að bóka.

Bóka núna