Vetur

Leiðin til fjalla

Búðu þig undir ævintýri þar sem malbikið endar.

Óviðjafnanleg upplifun

Vetrarævintýri á fjöllum

Ófyrirsjáanlegar aðstæður, óviðjafnanlegt umhverfi og krefjandi veður setja sinn svip á hálendisferðir yfir veturinn. Búðu þig undir ögrandi ferð á illfærum vegi í ógleymanlegu ferðalagi uppi á öræfum.

Á eigin vegum:

Vegirnir á hálendinu eru ekki ruddir á veturna og er þá aðeins fært í Kerlingarfjöll á sérútbúnum fjallajeppum. Þeir sem hafa aðgang að slíkum farartækjum og treysta sér til ferðarinnar geta heimsótt okkur á eigin vegum. Hér eru upplýsingar um leiðina og aðkomuna.

Við ítrekum við bílstjóra að vanda undirbúning, vera við öllu búnir og huga að færð og veðri áður en lagt er af stað — og jafnvel hætta við ferðina ef fyrirséð er að aðstæður verði sérstaklega erfiðar.

Skipulagðar ferðir:

Samstarfsaðilar okkar hafa milligöngu um flutning til og frá Kerlingarfjöllum. Hjá þeim starfa atvinnubílstjórar með reynslu af akstri á sérútbúnum farartækjum í krefjandi aðstæðum.

Akstur með bílstjóra

Frekari upplýsingar

1. mars-14. júní 2024:

  • Verð: 13.500 kr. aðra leið (sérkjör)

  • Akstur frá Skjóli í Kerlingarfjöll á fimmtudögum og föstudögum kl. 13:00

  • Akstur frá Kerlingarfjöllum í Skjól á laugardögum og sunnudögum kl. 13:00

Farið frá:

Tímalengd: 2-5 klst. (ræðst af aðstæðum)

Lágmarksaldur: 8 ára

*Staðsett nærri Gullfossi, um 1,5 klst. frá Reykjavík. Hægt er að leggja bílum í Skjóli.

Innifalið (ferðir til/frá Skjóli):

  • Enskumælandi atvinnubílstjóri

  • Sæti í sérútbúnum fjallajeppa

Ekki innifalið:

  • Matur

  • Drykkir

Vinsamlegast athugið

  • Tímalengd ferðalagsins ræðst af veðurskilyrðum og aðstæðum hverju sinni (gæti farið yfir 2 klst.)

  • Hálendisvegir eru ekki ruddir á veturna

  • Vegir eru illfærir og ferðin getur því verið krefjandi

Hvað þarf að taka með?

  • Vatn

  • Snarl

  • Hlý og þægileg föt

Afbókunarskilmálar

Afbókun þarf að berast að minnsta kosti 72 klst. fyrir brottför svo ferðin sé endurgreidd að fullu.

Bóka

Ógleymanlegt ferðalag

Leiðin til fjalla á sumrin

Frá Reykjavík til Kerlingarfjalla eru um 200 kílómetrar og leiðin tekur um 3 ½ klukkustund í akstri – undir eðlilegum kringumstæðum.

Nánar

Sendu okkur línu

Getum við aðstoðað?

Ekki hika við að hafa samband ef þú ert með frekari spurningar.