Á vit ævintýra

Ferðalagið

Á leið um fáfarna vegi til fjalla blasir víðáttan við, um leið og einstök þögn óbyggðanna legst yfir. Framundan breiðir hálendið úr sér og bíður þess að vera kannað.

Ógleymanlegt ferðalag

Leiðin í Kerlingarfjöll

Ferðin um hálendið er hluti af töfrum Kerlingarfjalla. Þögnin sem einkennir grýttar auðnir hálendisins er engu lík og hún fær ferðalanga til að staldra við og leggja við hlustir.

Staðsetningin

Highland Base er staðsett í Kerlingarfjöllum, í 700 metra hæð á miðju hálendi Íslands. Á sumrin er hægt að aka þangað sjálfur á fólksbílum eða stærri bílum, eða taka rútu. Á veturna er aðeins hægt að komast þangað á sérútbúnum fjallabílum undir stjórn fagfólks.

Vegalengdin

Frá Reykjavík til Kerlingarfjalla eru um 200 kílómetrar og leiðin tekur um 3,5 klukkustund í akstri – við bestu aðstæður. Hafa ber í huga að aðstæður á hálendi Íslands geta tekið breytingum frá degi til dags.

Vegvísun

Beygið af þjóðvegi 1 inn á þjóðveg 35, sem heitir Biskupstungnabraut við gatnamótin við Hringveginn og Kjalvegur þegar kemur að Gullfossi. Akið þjóðveg 35 uns kemur að fjallvegi F347 í Hrunamannahreppi, beygið þar og fylgið veginum uns þið komið að Highland Base.

Finndu okkur á Google maps.

Áður en lagt er af stað í ferðalag upp á hálendi mælum við með að kynna ykkur veður og færð vel. Hægt er að kanna aðstæður á eftirfarandi síðum:

Daglegar rútuferðir

Akstur á sumrin

Hallaðu þér aftur, njóttu útsýnisins og láttu okkur sjá um að koma þér á áfangastað.

Frá Reykjavík til Kerlingarfjalla

Verð: 14.990 kr. á mann

1. júlí-1. september er keyrt daglega frá Reykjavik Terminal í Skógarhlíð kl. 8:30.

Frá Kerlingarfjöllum til Reykjavíkur

Verð: 14.990 kr. á mann

1. júlí-1. september er keyrt daglega frá Kerlingarfjöllum kl. 17:00

Frá Gullfossi til Kerlingarfjalla

Verð: 14.990 kr. á mann

1. júlí-1. september er keyrt daglega frá Gullfossi kl. 10:00

Frá Kerlingarfjöllum til Gullfoss

Verð: 14.990 kr. á mann

1. júlí-1. september er keyrt daglega frá Gullfossi kl. 17:00

Umhverfi sem er engu líkt 

Eins dags ævintýri í Kerlingarfjöllum 

Kerlingarfjöll kalla! Skelltu þér í rútuferð frá Reykjavík á hálendið og til baka á einum degi. 

Nánar

Leiðin á hálendið

Ferðalagið á sumrin

Ógleymanleg ævintýraför

Leiðin til fjalla um vetur

Vegirnir á hálendinu eru ekki ruddir á veturna og er þá aðeins fært í Kerlingarfjöll á sérútbúnum fjallajeppum. Við bjóðum upp á ferðir með þrautreyndum atvinnubílstjórum. Mundu að bóka akstur fyrir ferðina.

Nánar