Okkar Sögur

Helstu upplýsingar – Kerlingarfjöll Ultra

Höfundur

Teymið í Kerlingarfjöllum

Dags.

Apr 29, 2025

Lestími

8 mín lestur

Við hlökkum mikið til að taka á móti ykkur í hjarta hálendisins.

Við eigum von á miklum fjölda fólks og viljum því ítreka við alla gesti að sýna tillitssemi og ganga gætilega um náttúruna á þessu viðkvæma svæði.

Sjáumst 25. júlí!

Keppnisgögn

Afhending keppnisgagna fer fram í Reykjavík 2-3 dögum fyrir hlaup. Þar geta keppendur í 60 km einnig skilað af sér litlum poka sem þeir geta nálgast við drykkjarstöð á meðan á hlaupinu stendur. Nánari upplýsingar um afhendingu keppnisgagna og staðsetningu drykkjarstöðvaverða uppfærðar þegar nær dregur.

Akstur og aðkoma

Við bendum keppendum á að kynna sér leiðina og gera ráð fyrir rúmum tíma í aksturinn þar sem vegurinn getur verið seinfær. Við leggjum einnig til að keppendur samnýti bíla eins og hægt er, bæði til að takmarka umferð og til að lágmarka átroðning á þessu viðkvæma svæði.

Veitingar

Á föstudagskvöld verður kolvetnaveisla á boðstólnum fyrir hlaupara sem vilja hlaða kolvetnabirgðirnar. Kolvetnaveislan er innifalin fyrir hótelgesti en gestir á tjaldsvæði geta einnig notið hennar gegn aukagjaldi sem greiðist á staðnum.

Einnig verður hafragrautur í boði á laugardagsmorgun og grillveisla eftir hlaupið. Hafragrauturinn og grillveislan eru innifalin í miðanum í hlaupið og krefjast ekki borðabókana. Aðstandendur geta keypt veitingar í grillveislunni gegn aukagjaldi sem greiðist á staðnum.

Mikilvægt er fyrir alla sem vilja borða á veitingastaðnum að bóka borð, bæði fyrir kolvetnaveisluna á föstudaginn og fyrir þá sem vilja borða á veitingastaðnum á laugardag. Hótelgestir bóka borð í gegnum My booking á vefsíðunni okkar og tjaldsvæðisgestir bóka [hér].

Hótelgestir þurfa ekki að bóka borð í morgunmat.

Hálendisböðin

Hlauparar geta nýtt Hálendisböðin kl. 14:00-20:00. Vegna viðburðarins eigum við von á miklum fjölda fólks á svæðinu og því biðjum við gesti að sýna tillitssemi og þolinmæði svo heimsóknin verði sem ánægjulegust. Í klefunum er takmarkaður fjöldi snaga ásamt litlum læstum skápum fyrir verðmæti sem við biðjum keppendur að samnýta eins og hægt er. Við minnum alla gesti einnig á að taka með sér handklæði.

Að komast að Hveradölum

Fyrst er að ferðast að hálendismiðstöðinni í Kerlingarfjöllum, eða Highland Base. Þar er hægt að teygja úr sér og draga andann. Að sumarlagi er hægt að keyra í Kerlingarfjöll á einkabíl, bóka rútuferð eða bóka akstur á sérútbúnum bílum. Við kjöraðstæður tekur um þrjá tíma að keyra frá Reykjavík að Kerlingarfjöllum og leiðin er um 200 kílómetrar. Þegar komið er í Kerlingarfjöll er ekki nema 5 kílómetra ganga inn að Hveradölum og er sú leið bæði fögur og auðveld yfirferðar. Einnig er hægt að komast að Hveradölum á fjórhjóladrifnum bíl. 

Drykkjarstöðvar

Drykkjarstöðvar verða staðsettar með reglulegu millibili meðfram brautinni þar sem í boði verður vatn, orkudrykkir og á sumum þeirra orka (t.d. súkkulaði, bananar og snakk) og neyðaraðstoð. Þátttakendur þurfa að hafa með sér lágmarksvökva og -næringu, sjá reglu um skyldubúnað.

Smelltu á vegalengdir til að skoða ítarupplýsingar og staðsetningar drykkjarstöðva.

Athugið að ekki er boðið upp á einnota glös á drykkjarstöðvum og þurfa hlauparar að hafa með sér eigið drykkjarmál. Kerlingarfjöll Ultra fer fram á friðlýstu náttúruverndarsvæði og er þetta þáttur í því að takmarka áhrif á náttúrulegt umhverfi Kerlingarfjalla með því að lágmarka ruslá svæðinu.

12 km: Ein drykkjarstöð í Hveradölum eftir 6 km.

22 km: Fyrri drykkjarstöð í Hveradölum eftir 6 km og seinni drykkjarstöð við Kerlingu eftir 14 km.

60 km: Drykkjarstöð eitt í Hveradölum eftir 6 km, stöð tvö við Loðmund eftir 15 km, stöð þrjú við Kisubotnaskála eftir 21 km, stöð fjögur við Grákoll eftir 34 km og stöð fimm við Kerlingu eftir 44 km.

Rástímar og tímamörk

12 km: Rástími kl. 13:00, tímatakmörk 4 klst.

22 km: Rástími kl. 11:00, tímatakmörk 6 klst.

60 km: Rástími kl. 08:00, tímatakmörk 12 klst.

Séu keppendur ekki komnir að Grákolli eftir 6 klst. er þeim gert að hætta þátttöku.

Leiðarlýsing

Hlaupaleiðin verður greinilega merkt með skiltum, flöggum og/eða brautarvörðum sem staðsettir eru á leiðinni.

Þátttakendur þurfa að halda sig á merktum slóðum allan tímann. Að stytta sér leið eða víkja frá merktum leiðum getur leitt til þess að keppanda verður vikið frá keppni.

Hlaupaleiðirnar fela í sér ójafnt yfirborð, hæðir, steina, rætur, leðju og aðrar náttúrulegar hindranir sem eru dæmigerðar fyrir náttúrulega hlaupastíga. Þátttakendur þurfa að sýna varkárni og aðlaga hraða sinn í samræmi við það.

Nánari lýsingu á hverri hlaupaleið fyrir sig má finna hér:

12 km

22 km

60 km

Brautarkynning fyrir 60 km

Á föstudaginn verður sérstök kynning yfir hlaupara í 60 km hlaupinu þar sem farið verður yfir aðstæður í brautinni, veðurspá og fleiri atriði sem koma sér vel fyrir hlaupara. Kjörið er fyrir keppendur í 60 km sem koma á hálendið á föstudaginn að nýta sér þetta frábæra tækifæri til að fá nákvæmar upplýsingar um brautina og aðstæður á svæðinu. Kynningin fer fram í setustofunni á hótelinu í Kerlingarfjöllum kl. 20:30.

Tímataka og úrslit

Tímataka keppninnar verður framkvæmd með rafrænum tímatökubúnaði frá Tímatöku.

Þátttakendur verða að staðsetja sitt úthlutaða keppnisnúmer á áberandi stað framan á fatnaði sínum allt hlaupið til að tryggja nákvæma tímasetningu.

Opinber úrslit keppninnar verða birt á vefsíðu timataka.net.

Öryggi og læknisaðstoð

Heilbrigðisstarfsmenn/björgunarsveitarfólk verður staðsett á upphafs-/marksvæði og á völdum aðstoðarstöðvum með fram brautinni.

Þátttakendur sem þurfa á læknisaðstoð að halda ættu tafarlaust að láta starfsfólk aðstoðarstöðva vita.

Í neyðartilvikum ættu þátttakendur að hringja í neyðarþjónustu og fylgja leiðbeiningum frá yfirmönnum keppninnar og heilbrigðisstarfsfólki.

ITRA stig

22 km og 60 km hlaupaleiðirnar eru viðurkenndar af ITRA og fá þátttakendur sem ljúka þeim punkta og ITRA stig.

22 km hlaupaleiðin gefur 1 punkt og ITRA stig.

60 km hlaupaleiðin gefur 3 punkta og ITRA stig.

Skyldubúnaður

Þátttakendur þurfa að vera í viðeigandi hlaupaskóm með góðu gripi og fatnaði sem tekur mið af veðurspá.

Skylda er að hafa farsíma með sér til að nota til að hafa samband við neyðarþjónustu og/eða yfirmenn keppninnar.

Nánar um skyldubúnað mismunandi vegalengda.

12 km: Allir hlauparar þurfa að vera með margnota drykkjarmál, flautu og vera klæddir í samræmi við veður.

22 km: Allir hlauparar þurfa að vera með margnota drykkjarmál, flautu, álteppi, 200 kcal orku og vind- og vatnsheldan jakka með hettu ásamt því að vera klæddir í samræmi við veður.

60 km: Allir hlauparar þurfa að vera með margnota drykkjarmál, flautu, álteppi, lágmarkssjúkrabúnað, 500 kcal orku og regnfatnað (vind- og vatnsheldan jakka og buxur) ásamt því að vera klæddir í samræmi við veður.

Umhverfisvernd

Kerlingarfjöll Ultra fer fram á friðlýstu náttúruverndarsvæði.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur virði náttúrulegt umhverfi og lágmarki áhrif sín á náttúru Kerlingarfjalla.

Það er stranglega bannað að henda rusli nema á þar tilgerðum stöðum, á drykkjarstöðvum og í endamarki.

Þátttakendur verða að bera með sér rusl þar til á næstu drykkjarstöð eða í endamark.

Mikilvægt er að halda sig á merktum stígum, til að koma í veg fyrir röskun á jarðvegi.

Vanhæfi, refsingar og keppnisstjórn

Þátttakendur geta verið dæmdir úr leik fyrir að brjóta reglur keppninnar, sýna óíþróttamannslega framkomu eða stofna sjálfum sér eða öðrum í hættu.

Forráðamenn keppninnar áskilja sér rétt til að beita tímarefsingum, brottvísun eða öðrum viðurlögum eftir því sem þurfa þykir.

Keppnisstjóri hefur umboð til að taka endanlegar ákvarðanir varðandi alla þætti sem tengjast viðburðinum, þar með talið breytingar á leiðum, aflýsingu keppninnar eða brottvísun þátttakenda.

Nafnabreytingar

Ef svo ólíklega vill til að þú getir ekki nýtt þér þinn miða bendum við á að hægt er að sækja um endurgreiðslu til 15. júní, auk þess sem nafnabreytingar eru leyfilegar til 24. júlí.